Stolin æska eða Vistheimilasamtökin?

EstherEsther Erludóttir boðar tillögu á aðalfundi samtakanna um nafnabreytingu úr "Breiðavíkursamtökin" yfir í "Stolin æska". Það er hér með tilkynnt, en þess má geta að þetta nafn varð undir í nafnakosningu á stofnfundi samtakanna 29. apríl 2007.

Nú eru breyttir tímar og vaxandi vilji til þess að nafn samtakanna endurspegli ekki aðeins eðli þeirra heldur hafi ekki yfir sér stimpil eins vistheimilis umfram önnur.

Þegar hefur komið fram tillaga frá tveimur félögum um nafnabreytingu yfir í "Vistheimilasamtökin" og stefnir því í skemmtilegar kosningar um nýtt nafn samtakanna.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: SVB

  • Baugalín Baugalin
    Stolin æska hljómar vel, segir margt um hvað var að gerast og gæti orðið mjög flott, en hvaða önnur nöfn eru komin á tillögulistann? Ekki það að mér finnst nafnið Breiðavíkursamtökin vera í sjálfu sér allt í lagi, það nafn er svona út af þ...essum fyrstu vistheimilastrákum sem komu fram í blöðum og sjónvarpi og brutu ísinn - eins og þeir séu smá svona feður samtakanna - nafnið Breiðavíkursamtökin er líka þekkt hjá þjóðinni og virðist hafa fest sig í sessi hjá almenningi í tengslum við vanrækslu og ofbeldi á börnum - svo kannski ættum við ekkert að vera að breyta nafninu??? en svo var það nafnið Vistheimilasamtökin sem ég heyrði af, það gefur mér líka góða tilfinningu því það er svona samheiti um öll heimilin, nafn sem segir í rauninni allt og allir geta sameinast undir.

  • Friðrik Þór Guðmundsson Lilló
    Já, segja má að ég viti um fjórar nafnatillögur 1) óbreytt nafn 2) Vistheimilasamtökin, 3) Stolin æska og svo heyri ég að kona sem þú þekkir sé að boða nafnið 4) Brotin æska (ég bíð eftir staðfestingu).

    Breiðavíkursamtökin eru firna gott naf...n, en hefur líka þann stóra galla að fókusa á eitt vistheimili og það fellur ekki öllum fyrrum vistbörnum í geð. Hitt er annað mál að í lögum samtakanna er heimild til að stofna undirfélög um hvert vistheimili og hver veit nema þetta nafn fái að lifa áfram sem undirfélag fyrrum vistbarna einmitt þessa tiltekna vistheimilis.

    Svo er tillaga um eitt þúsund króna árgjald. hvað finnst þér um það?

  • Unnur Millý Georgsdóttir Utangarðs-samtökin, Kærleiks-samtökin, bandalag vistheimila,, Ung,særð og sár, sem má stytta í bandalagið USS og svo lengi má telja.Það getur tengst nafni þess sem fór fyrst af stað, árinu sem það var stofnað, með skammstöfunum og hmmm, möguleikarnir eru endalausir. Finnst samt að sá sem hefur heiðður af byrjun þessa samtaka ætti að vera í nafninu, hægt að blada þessu saman..jafnvel ártalið...já, það á eftir að verða mikið spekúlerað í þessu.

SVB, 7.1.2011 kl. 03:02

2 Smámynd: SVB

------------------------------------------------------------------

Nýtt nafn þarf að vera:

 

Skírskota til starfseminnar

Fara vel í mæltu máli

Þægilegt og fljótlegt í ritun

Ekki of langt

Grípandi og auðvelt að muna

 

Ég mæli með VISTASAMTÖKIN

 

KV Hafsteinn

 

 ----------------------------------------------

Jón Magg Magnússon: Vistheimilasamtökin

------------------------------------------------

 

Jóhanna Sturludóttir: "....stinga upp á nafninu "Brotin æska" sbr. brotnir einstaklingar".

 

 

 

SVB, 7.1.2011 kl. 20:05

3 identicon

 

Vistheimilasamtökin er rétta nafnið - ekki spurning og 1000 krónur er mjög ásættanlegt, litlu meira en einn pakki af sígarettum kostar svo allir geta auðveldlega greitt gjaldið.

Og þetta með undirfélögin hljómar frábærlega vel, því þá er hægt að stofna lítlar deildir sem halda utanum sögu hvers heimilis.

Baugalín (IP-tala skráð) 7.1.2011 kl. 21:52

4 Smámynd: SVB

Samtök um vistun barna og unglinga.

kveðja
Anna Björg.

SVB, 13.1.2011 kl. 10:52

5 Smámynd: Anna

Eda Samtok um vistheimili barna og unglinga.Kvedja Anna Bjorg

Anna , 14.1.2011 kl. 11:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband