Innköllun vegna U-heimilanna hafin
27.3.2012 | 16:38
Innköllun vegna Jaðars rennur út nú í apríl, en innköllun á kröfum vegna U-heimilanna og tengdra stofnana er nú nýhafin og er kröfufrestur til 30. júní. Samanber auglýsingu sýslumanns:
Í samræmi við ákvæði laga nr. 47/2010 um sanngirnisbætur fyrir misgjörðir á stofnunum eða heimilum sem falla undir lög nr. 26/2007 og tóku gildi hinn 28. maí 2010, hefur sýslumanninum á Siglufirði verið falið að gefa út innköllun, fara yfir kröfur og gera þeim sem eiga rétt á bótum skrifleg sáttaboð. Skal sýslumaður eftir því sem kostur er fjalla samtímis um allar kröfur er lúta að sama heimilinu.
Á grundvelli þessa er nú kallað eftir kröfum frá þeim sem voru vistaðir á:
Upptökuheimili ríkisins
Starfsemi heimilisins var í Elliðahvammi í Kópavogi á árunum 1945-1964 og í starfsmannabústað Kópavogshælis við Kópavogsbraut á árunum 1964-1971.
Hér með er skorað á alla þá sem voru vistaðir á Upptökuheimili ríkisins einhvern tíma á árabilinu 1945-1971 og urðu þar fyrir illri meðferð eða ofbeldi sem olli varanlegum skaða, að lýsa kröfu um skaðabætur fyrir undirritaðri fyrir 30. júní 2012. Kröfu má lýsa á eyðublaði sem er að finna á vefnum www.sanngirnisbætur.is og hjá tengiliði vegna vistheimila. Unnt er að skila umsókn í rafrænu formi.
Allar kröfur skulu sendar sýslumanninum á Siglufirði, Gránugötu 4-6, 580 Siglufirði.
Verði kröfu ekki lýst fyrir 30. júní 2012 fellur hún niður.
Bent er á að unnt er að leita aðstoðar tengiliðar vegna vistheimila við framsetningu og skil á bótakröfu. Aðstoð tengiliðar er að kostnaðarlausu. Skrifstofa tengiliðar er að Hverfisgötu 4a-6a, þriðju hæð, 101 Reykjavík. Sími tengiliðar er 545 9045. Veffang er www.tengilidur.is og netfang er tengilidur@tengilidur.is.
Siglufirði 24. mars 2012
Ásdís Ármannsdóttir sýslumaður
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkar: Mannréttindi, Trúmál og siðferði, Viðskipti og fjármál | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.