Skýrsla um Kumbaravog, Bjarg og Heyrnleysingjaskólann

 Og þá er komin Spanónefndar-skýrsla um Kumbaravog, Bjarg og Heyrnleysingjaskólann. Fréttin sem færsla þessi er tengd við segir frá afsökunarbeiðni Jóhönnu til fyrrum vistbarna og nemenda þessara stofnana, en hér að neðan er að finna texta Eyjunnar um skýrsluna og hvað Jóhanna Forsætis er nú að boða. Einnig er neðst að finna tengil á tilkynningu forsætisráðuneytisins og skýrsluna sjálfa.

 

Innlent - þriðjudagur - 8.9 2009 - 18:16

Forsætisráðuneytið: Lög verða sett um skattfrjálsar bætur vegna misgjörða á vistheimilum. Eftirlit bætt

stjornarrad5.jpgRíkisstjórnin hefur ákveðið að sett verði almenn lög um bætur vegna misgjörða á vistheimilum og að skipuð verði bótanefnd sem tengiliður vistmanna starfar með.

Þetta eru meðal fyrstu viðbragða ríkisstjórnarinnar við skýrslu vistheimilisnefndar um Heyrnleysingjaskólann, Kumbaravog og skólaheimilið Bjarg, sem skýrt er frá í tilkynningu forsætisráðuneytisins nú undir kvöld.

Þar er einnig rætt um skattfrelsi bóta og erfðarétt vegna einstaklinga sem fallið hafa frá og jafnframt að eftirlit með vistheimilum af hálfu hins opinbera verði bætt.

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra, sem segir þessa atburði svartan blett í sögu þjóðarinnar, og Árni Páll Árnason félagsmálaráðherra, báðust formlega afsökunar á misgjörðunum fyrir hönd stjórnvalda í dag. Félagsmálaráðherra viðurkennir að opinbert eftirlit með starfsemi vistheimilanna hafi í öllum tilvikum brugðist.

Samkvæmt fréttatilkynningu forsætisráðuneytisins ákvað ríkisstjórnin ákvað eftirfarandi sem fyrstu viðbrögð:

“1. Starfshópi á vegum forsætisráðuneytisins verði falið að semja drög að frumvarpi til laga þar sem mælt verði fyrir um greiðslu bóta til þeirra sem orðið hafa fyrir illri meðferð eða ofbeldi á stofnunum eða heimilum er heyra undir gildissvið laga nr. 26/2007. Þar verði byggt á þeim viðræðum sem þegar hafa átt sér stað milli ráðuneytisins og Breiðavíkursamtakanna en hliðsjón höfð af niðurstöðum vistheimilisnefndar í hinni nýju áfangaskýrslu. Stefnt verði að því að frumvarpið verði lagt fram á Alþingi fljótlega eftir að haustþing kemur saman.

2. Starfshópi á vegum félags- og tryggingamálaráðuneytisins verði falið að undirbúa stefnumótun stjórnvalda í málefnum heyrnarlausra með hliðsjón af áður fram komnum tillögum og áfangaskýrslu vistheimilisnefndar.

3. Ítrekað verði að úrræði þau á sviði geðheilbrigðisþjónustu sem heilbrigðisyfirvöld komu á laggirnar í kjölfar skýrslu vistheimilisnefndar um Breiðavíkurheimilið standi einnig til boða fyrrverandi vistmönnum á öðrum heimilum sem falla undir lög nr. 26/2007.

4. Félags- og tryggingamálaráðherra taki mið af áfangaskýrslunni við endurskoðun á barnaverndarlöggjöf og framkvæmd og eftirliti á því sviði.

Sett verði almenn lög

Að því er varðar mögulegar bætur til fyrrverandi vistmanna á heimilum sem falla undir lög nr. 26/2007 þá hefur forsætisráðuneytið frá því í apríl síðastliðnum átt í viðræðum og bréfaskiptum við Breiðavíkursamtökin. Er þar meðal annars rætt um hvernig megi endurbæta það frumvarp sem þáverandi ríkisstjórn hafði látið vinna vorið 2008 og kynnt hafði verið samtökunum á þeim tíma. Það frumvarp var meðal annars gagnrýnt fyrir að bætur væru of lágar og of mikil áhersla lögð á að sýnt væri fram á geðrænar afleiðingar vistunar. Síðustu samskipti voru þau að ráðuneytið sendi bréf með ákveðnum hugmyndum 8. júlí sl. og Breiðavíkursamtökin svöruðu með bréfi dags. 18. ágúst sl. Ráðuneytið hafði lýst sig reiðubúið til að útfæra bráðabirgðasátt varðandi Breiðavíkurheimilið á grundvelli núgildandi fjárheimilda en því var hafnað.

Þess vegna er áfram unnið að því að sett verði almenn lög sem geti átt við um bætur vegna misgjörða á öllum þeim heimilum sem koma til skoðunar á grundvelli laga nr. 26/2007 um vistheimilisnefnd. Áður en rætt er um fjárhæðir í einstaka tilfellum er mikilvægt að ná sátt um aðferðafræðina við ákvörðun bóta, þ.e. rammann um sátt samfélagins við þá sem eiga um sárt að binda eftir dvöl á vistheimilum fyrir börn.

Meginatriði löggjafar

Ráðuneytið sér fyrir sér að meginatriði löggjafar verði þessi:

a. Sett verði á fót bótanefnd en samhliða henni starfi tengiliður vistmanna við stjórnvöld er aðstoði fyrrverandi vistmenn við að ná fram rétti sínum, m.a. varðandi félagslega aðstoð, heilbrigðisþjónustu og menntun. Þegar skýrsla vistheimilisnefndar liggur fyrir verði auglýst eftir þeim sem telja sig eiga rétt á bótum.

b. Bótanefnd geti úrskurðað almennar bætur er nemi tiltekinni fjárhæð, sem eftir er að ákveða, og sé meginskilyrði að vistmaður hafi sjálfur orðið fyrir illri meðferð eða ofbeldi á meðan vistun stóð.  Ekki verði um strangar sönnunarkröfur að ræða.

c. Í sérstökum tilfellum verði heimilað að hækka bætur að álitum. Hækkun bóta geti m.a. komið til vegna alvarleika ofbeldis eða illrar meðferðar, aðdraganda vistunar eða tímalengdar vistunar.

d. Kveðið verði á um skattfrelsi bóta, erfðarétt vegna einstaklinga sem fallnir eru frá, aðgang bótanefndar að gögnum vistheimilisnefndar til að einfalda málsmeðferð og lögmannsaðstoð.

Forsætisráðherra mun nú fela starfshópi að undirbúa frumvarp á grundvelli samskipta ráðuneytisins við Breiðavíkursamtökin og í ljósi fyrstu áfangaskýrslu vistheimilisnefndar sem fjallar um þrjú heimili til viðbótar eins og áður segir. Samráð verður haft við samtök fyrrverandi vistmanna og hlutaðeigandi sveitarfélög.

Skýrsla vistheimilisnefndar verður lögð fram á Alþingi í næsta mánuði,” segir í tilkynningu forsætisráðuneytisins.

Skýrsla vistheimilanefndar í heild

 


mbl.is Jóhanna biðst afsökunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Komunn tími á þetta, en vafalaust verðut lopinn teigður talsvert, áður en smánarlega ósanngjarnar sanngirnisbætur verða greiddar. 

breiðvikingur (IP-tala skráð) 9.9.2009 kl. 04:05

2 Smámynd: Friðrik Þór Guðmundsson

Það er svo sem ekki endilega víst, breiðvíkingur góður. Held að þessi nýja skýrsla marki mikilvæg tímamót og að ríkisstjórnin muni að sönnu leggja fram bótafrumvarp í haust og afgreiða fyrir áramót. Þá tæki væntanlega við ákveðin nefndarvinna, en bætur gætu fallið til á segjum innan við ári héðan í frá. Spurningin er miklu heldur hvort upphæðir verði með þeim hætti að "sanngjarnt" geti talist. Breiðavíkursamtökin hafa reynt að vinna að því að um sómasamlegar bætur verði að ræða.

Friðrik Þór Guðmundsson, 9.9.2009 kl. 11:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband