Bótamálið má ekki dragast úr hömlu

Síðasta miðvikudag (18. júní) var frétt í Sjónvarpinu með viðtali við þá mætu konu, Ásu Hjálmarsdóttur, móður Breiðavíkurdrengsins Konráðs Ragnarssonar. Fréttin í heild var þörf áminning (sjá hér). Áminning um að stjórnvöld dragi ekki að óþörfu að bæta fyrrum vistbörnum hins opinbera þá nauðung og ofbeldi sem þau upplifðu, í þessu tilfelli Breiðavíkurdrengjum.

Ekki tókst að ljúka samningu, framlagningu og samþykkt bótafrumvarps á þingi sl. vor og héðan af gerist því ekkert fyrr en með samþykkt frumvarps að hausti. Það liggur alveg ljóst fyrir að margir Breiðavíkudrengjanna eru ekki heilsuhraustir og tveir hafa látist það sem af er árinu, að því er fram kemur í fréttinni. Það er því slæmt ef bæturnar dragast að óþörfu, en hins vegar um leið mikilvægt að vanda til verka - því bæturnar verða að vera sómasamlegar og í þeim verður fólgið mikilvægt fordæmi hvað bætur varðar til fyrrum vistbarna annarra vistheimila. Það hefði þannig ekki komið á óvart ef þingið hefði, vegna flýtis og nísku, samþykkt í hraði allt of lágar bætur.

Mikilvægt er að sumarið sé í þessu sambandi vel nýtt og komist að niðurstöðu um raunhæfar bætur, þannig að þegar þing kemur saman þá renni frumvarp í gegn eins og bráðið smér. Breiðavíkursamtökin (regnbogasamtök fyrrum vistbarna hvers kyns vistunarúrræða barnaverndaryfirvalda) vilja taka þátt í þessari vinnu og gera það. Ragnar Aðalsteinsson lögfræðingur er þar samtökunum innan handar, en lögfræðilega og félagslega er allsendis ekki um einfalt mál að ræða.

Bloggsíðan óskar Ásu til hamingju með skeleggt viðtal og gott aðhald að stjórnvöldum og sendir Konráði syni hennar einlægar óskir um bætta heilsu.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnheiður

Ása er einn besti talsmaðurinn sem Breiðavíkursamtökin hafa, hún er samnefnari fyrir mæðurnar sem urðu að horfa eftir börnum sínum í slíkar vistir. Móðurbróðir minn var einn þeirra og þau hin systkinin vistuð á ýmsum barnaheimilum í gegnum tíðina þar á meðal móðir mín auðvitað. Það litla sem upp úr henni fékkst um þann tíma var skelfilegt og óskiljanlegt okkur nútímamönnum.

Baráttukveðja til ykkar !

Ragnheiður , 28.6.2008 kl. 16:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband